Ég er semsagt að pæla í að fá mér gat í vörina og gæti þegið smá upplýsingar um það :)
Í fyrsta lagi, er það sárt? Ég horfði á einhver myndbönd á youtube og það leit ekki út fyrir að vera sárt en vildi samt spurja!
Hvar er best að láta gera þetta og hvað kostar það sirka?
Skemmir þetta tennurnar eitthvað? Var eitthvað búin að heyra um eitthvað sílíkon dæmi (man ekki alveg hvað það var) sem væri hægt að setja í munninn og minnka skemmdirnar.
Skiptir það máli hvort maður fær pinna eða hring?
Er almennt eitthvað meira sem ég ætti að vita um þetta?

Ef það verða einhverjir sem svara þessu, takk kærlega :)!
hehe