Ég lét gata tunguna mína í dag og gatarinn sagði mér að borða mikið af ís (hann var ekki að tala um klaka) til þess að tungan myndi ekki bólgna mikið upp. Seinna um kvöldið hitti ég vin minn sem fór til sama gatara og þessi sami gatari sagði honum að borða mikinn ís, en hins vegar engar mjólkurvörur. Bíddu what?

Þaaannig ég fór að googla þetta, en fólk er að koma með totally random svör, sumir segja að maður getur borðað hvað sem er, en aðrir segja að ég eigi ekki að borða rautt kjöt, ekki neitt spicy, ekki neitt með salti, ekki neinar mjólkurvörur, ekkert áfengi og helst ekkert sem ég þarf að tyggja!
Svo að nú væri ég til í að fá alvöru svör.. hvað má ég og hvað má ég ekki borða? :) Ég hafði hugsað mér að lifa á jógúrti meðan tungan væri að jafna sig en ég veit bara ekkert hvort það er í boði.. Svo, getur einhver sem er 100% viss á þessu svarað mér? :)
Takk fyrir!
-Satine.
Music.. my escape from reality.