Ég er búinn að vera að pæla í að fá mér göt nokkuð lengi, en langar í eitthvað sem mjög fáir eru með.

Datt niður á þá hugmynd að fá mér í munnvikin, en man ekki eftir því að hafa séð svoleiðis og örstutt ferð um google reyndist ekki árangursrík.

Hefur einhver séð einhvern með svona? Og er einhver hérna sem gæti haft hugmynd um hvort eitthvað mæli gegn svona götum?

Bætt við 28. nóvember 2008 - 03:17
Og, já, ég er búinn að fá að heyra að þetta sé pottþétt böttföglí.