Ákvað að spyrja ykkur reyndu :).
Er með frekar ákveðna mynd í huga sem verður húðflúruð á mig í framtíðinni. Á þó eftir að útfæra hana og ég var með smá pælingu.
Haldiði að það sé hægt að flúra á mann hálfgerða þoku? Svona “mist”. Er frekar stór mynd (finnst mér) og myndi passa vel inní að hafa svona “mist” á ákveðnum stað. Sá samt ekki alveg fyrir mér hvernig væri hægt að húðflúra það á mann… þá meina ég vel, þannig það sjáist alveg hvað þetta er.

Hvað haldið þið?
=)