Fann þessa frétt á mbl.is (eins og titillinn gefur til kynna) - og já núna er hún á Mbl.is :D

En allavega svona hljóar hún:

Lést eftir að hafa látið gata tunguna

Ísraelskur hermaður lést á sjúkrahúsi í Jerúsalem eftir að hann lét gera gat í tunguna á sér, að sögn talsmanns spítalans. Fékk hermaðurinn sýkingu í heilann af völdum aukaverkana frá götuninni og lést í gær vegna lifrarbilunar.

Hermaðurinn var tvítugur og lét gata í sér tunguna í júlí í sumar. Nokkrum dögum síðar missti hann meðvitund og var fluttur á sjúkrahús þar sem læknar komust að þeirri niðurstöðu að hann hefði fengið sýkingu í heila. Slíkar sýkingar munu vera afar fátíðar.

Hermaðurinn var í mánuð á sjúkrahúsinu og jafnaði sig að mestu, en núna um helgina missti hann aftur meðvitund og lést. Talsmaður sjúkrahússins segir, að hafin sé rannsókn á því hvort mannleg mistök hafi átt þátt í því hvernig fór.

Fannst hún svo fyndin að ég varð að setja þetta hingað inn…
DEYJA við götun í tungu! HAHA, AULY!