Eftir skemmtilegan og á köflum sársaukafullan mánuð er tungan á mér loksins klofin. Kom heim úr vinnu í gær og náði að slíta upp seinustu tægjurnar sem héldu tungubroddunum saman.

Netið hjá mér er hins vegar allt í fokki, og ég er núna búinn að reyna að senda mynd inn meira en 20 sinnum í gær og í dag, en browserinn frýs í hvert skipti. En er búinn að hlaða myndum inn á usb-stick og á morgun eða laugardag kemst ég í tölvu sem virkar, þannig ég sendi þær inn þá.

Í ferlinu var ég byrjaður að finna fyrir tungubroddunum, þvs bláendunum sem 2 aðskildum einingum, en það var fyrst þegar þetta slitnaði í sundur að ég finn virkilega fyrir báðum vöðvunum sem sitthvorri einingunni, og það er geðveikt funky tilfinning. Annars á ég engin orð á íslensku til að lýsa hvernig mér líður…I feel a great wave of accomplishment surging through every single fiber of my being…væri svona það sem kæmist næst því.

Ég er þegar byrjaður að geta leikið mér með broddana, enda getað æft þá upp á meðan ferlinu stóð, þannig ég get krosslagt þá, velt þeim rúllað og teygt, en þarf samt að æfa samhæfinguna aðeins betur, það er oft sá vinstri sem fer af stað þegar ég ætla að hreyfa hægri og svona, en það kemur.

Ég mun leggja grein inn á áhugamálið með öllu ferlinu safnað saman, myndum sem sýna skiptinguna á vírnum, þróun skurðsins og montage af tilbúnu tungunni hér á næstu dögum.

Annars vill ég þakka kærlega þeim sem hafa veitt mér ráð og leiðbeiningar áður en ég hófst handa við splittið, og ykkur sem hafa fylgst með þessu og kommentað hér á huga, og ég vona að þið hafið haft jafn gaman að þessu eins og ég hef haft með þeim tugum bandaríkjamanna sem ég hef fylgst með gera það sama.

ps. Ekki gera body-mods á ykkur sjálf, þetta er ekki leikfang eða eitthvað sem maður gerir uppá flipp til að prófa. Flest body-mod eru frekar ill- eða óafturkallanleg, og það þarf ekki mikið að klikka til að maður hljóti varanlegan skaða af. Leitið til fagmanna til að láta gera svona hluti.