Ég pantaði tíma hjá Fjölni í Íslenzku Tattostofunni en það er bara svo dýrt startgjaldið þarna, 10k plús þá er þetta soldið stórt tattoo þannig þetta mun kosta talsvert.
Ætti ég að afpanta tímann og panta einhverstaðar annarstaðar eins og Tattoo 69 eða House of Pain eða T&S? Einnig er ég að pæla að fá mér öðruvísi tattoo en þetta sem ég var búinn að ákveða, semsagt ég ætlaði að fá mér fótboltamerki en í staðinn er ég að pæla að fá mér nafnið á mömmu minni á öxlina eða brjóstkassann. Ég er bara svo óákveðinn:S En ætti ég að afpanta tímann og panta annarstaðar?