jæææjaaa :D ég var bara að koma heim… LOKSINS er ég komin með tattúú :D:D samt á eftir að klára það … náðum ekki alveg að klára það :D

Mér til mikillar hamingju var þetta ekki nærri því eins vont og ég ímyndaði mér, þó að útlínurnar komi nálagt því :D :D

Ég fór til vincents á tattoo69 klukkan tvö í dag, hann byrjaði að teikna og var að því til svona þrjú, svo skellti ég mér í stólin að deyja úr stressi, en þegar hann byrjaði róaðist ég niður þó ég hafi nánast étið stólinn meðan hann gerði útlínurnar haha :$

Við náðum ekki að klára, hann á eftir að setja litina í þetta svo atm er þetta bara svarthvítt en mjög flott :D ég er hæstánægð með útgáfuna og virkilega montin :D

Þetta er dúfa, í minningu um ömmu mína staðsett á herðablaðinu :D sendi mynd um leið og ég nenni :D



Bætt við 2. ágúst 2008 - 16:41
útkomuna* lol ekki útgáfuna :P
Nenniru að horfá mig þegar ég tala við þig =C