Ég er búin að vera að pæla í næsta tattúi lengi og var með hugmynd í kollinum mjög lengi, ákvað að bíða með hana því það var alltaf einhver efi og ég er fegin að ég beið því ég fékk alltaf 3 orð í kollinn þegar ég hugsaði um tattoo, love, hope, faith, var alltaf eitthvað að pæla í þessu og svo alltí einu fattaði ég hvað ég vildi, trú, von og kærleikur merkið, kross, hjarta og akkeri.
Svo síðustu daga er ég búin að vera að hugsa þetta og nú er ég með nokkrar spurningar :P

Vitið hvort það sé langur biðlisti hjá Jason á House of Pain?
Vitiði afhverju akkerið táknar von?
Vitiði um myndir af merkinu (google er ekki að virka fyrir mig)?

Vona að fólk fari ekki að drulla yfir hugmyndina, margir sem ég segi frá þessi verða hissa og segja, ekki vissi ég að þú ærir svona trúuð en málið er að mér finnst þessir þrír hlutir stór hluti af góðu lífi og að vera góð manneskja :P

Bætt við 21. júlí 2008 - 14:17
og já, ég gleymdi
í tattúi sem ég er með er smá skemmd eftir flugnabit.
Vantar smá lit í það bara, er ekki auðvelt að laga það, þetta er bara svart sem vantar, kemur nokkuð litarmunur úr nýrra bleki eða eitthvað, flúrið er ársgamalt :P
Voulez-vous coucher avec moi, ce soir?