Góðan dag.
Mér tókst loksins að mana mig upp í að fara og fá mér tragus og skellti mér í það í gær. Var búin að ákveða milljón sinnum að fara.. en svo alltaf ekki þorað og hætt við.
Er ekkert smá ánægð með nýja gatið mitt:) Fór á Tattoo&Skart og það var rosalega almennileg stelpa sem gerði þetta í mig.

En í sigurvímunni eftir götunina gleymdi ég gjörsamlega að spurja hvernig ég ætti að hugsa um þetta, hvenær ég megi skipta um lokk, hvað beri að varast o.s.frv.

Eru ekki einhverjir Hugarar sem geta gefið mér góð ráð?:)