Hvernig plugs finnst ykkur sem eruð með stækkuð göt best að nota?

Ég er með 8mm og 6mm lobe, stærra gatið er rúmlega árs gamalt og hitt er svona 2 mánaða.

Lengi notaði ég bara viðar plugs í eldra gatið, svo fyrir svona 3 mánuðum skipti ég yfir í plast. Mér finnst það svitna miklu meira og þarf að þrífa það miklu miklu oftar heldur en þegar ég var með við, svo í gær var gatið orðið helaumt svo ég skipti aftur í viðinn og á innan við sólarhring finn ég ekki fyrir þessu.

Hins vegar hef ég bara notað plast í minna gatið, og það hefur hingað til ekki verið vesen. Ég á ekki við í það og hef aldrei prófað… Ég virðist heldur ekki svitna svona mikið þar og á stærra gatinu með plasti, svo ég fatta þetta ekki alveg :P


Hvað finnst ykkur best?