ég var að pæla að fá mér flúr , en það verður frekar langt í það því að ég fæ aldrei leyfi frá foreldrunum þannig ég þarf að bíða eftir sjálfræði :/ . eins og þegar systir mín fékk sitt fyrsta 16-17 ára þá brjáluðust þau .. eða amk pabbi:P og ég hef alltaf verið þessi hreini í minni fjölskyldu þannig ég hef mikla ábyrgð en mig langar óendanlega mikið í eitt flúr .

og ég hef verið að pæla mjög mikið í því hvar ég ætti að fá mér og hvað ég ætti að flúra á mig og hef verið staðráðin á einni hugmynd minni , og það er að fá Red Hot Chili Peppers stjörnuna eða svona frekar þykk ‘sinnum stjarna’ á frammhandlegginn , og áðan var ég bara að gera ekki neitt og að láta mér leiðast og ákvað að taka mynd af hendinni á mér og nota mína ofur paint hæfileika og teikna þetta á myndina
og hér er hún –> http://img54.imageshack.us/my.php?image=tattoohugej2.jpg
ég var ekki allveg sáttur við útkomuna en ég á eftir að prófa olíu tússinn :P