Jæja dömur og herrar .. og aðrir..

Ég lét verða af því!

Ég er svo stolt af mér!

Það hefur tekið mig 2 mánuði að mana mig upp í þetta…

En svo lét ég verða að því í gær…

Ég ætlaði til PTL og fá þetta … en er ég kom þarna… komst ég að því að hún væri í fríi…

Svo í minni löngun til að fá gat og hrædd um að ef ég fái þetta ekki gert í dag hætti ég við endanlega ….

Svo eg brunaði upp í Tattoo&Skart og þar sá ég bara hana Sessu sem hafði eiginlega bara rólegan dag greinilega…

Kom inn og sagðist vilja tungugat… hún sagði það vera sjálfsagt og bað mig um skilríki sem ég sýndi…
Svo bauð hún mér sæti í stólnum…

Ég var með hnút í maganum vegna bæði stress og spennings!

Hún gataði síðan og lét mig fá blað og fræddi mig um þetta allt saman!

Ég þakkaði henni kærlega fyrir og greiddi mína skuld, skundaði svo út hæst ánægð með þetta

Fór svo í Rimaapótekið og keypti það sem ég þurfti til að halda þessu hreinu þar og viti menn…


Nú er ég með tungugat! :D
~ Systematic, Sympathetic