Mig er farið að langa ótrúlega mikið í tattú og datt í hug að spyrjast aðeins fyrir um.

Mig langar ekkert í neitt svona tribal dót, kínversk tákn, fígúrur úr goðafræðinni, orð eða neitt þannig þó margt af því geti auðvitað verið flott eins og allt annað.

Mig langar í tónlistartattú, ég satt að segja er ekki búinn að ákveða hvernig mig langar í, mér finnst f-hole merkin(eins og er á fiðlum) drulluflott og nótur líka, þó ég kunni reyndar ekki að lesa þær. Myndi náttúrulega þurfa að læra það fyrst, bara svo töff tattú. Svo myndi mig kannski langa að fá eitthvað artwork í kringum það.

En allavega, í svona löguðu… hvaða artist mælið þið með hér í bæ?

Ef þið hafið síðan svöl svona tattú til að sýna, endilega komið með þau.