Heyriði já, ég ætla að fá mér gat í nefið. Er samt pínu hrædd við það afþví að er ekki auðvelt að fá sýkingu og sona? Og ég er með frekar viðkvæma húð (það var reyndar mamma sem var að pirra sig yfir því, en þúst).

Síðan var ég að pæla, er þetta ekki vont? Og hvað er þetta lengi að gróa? Og ég fæ pottþétt ör, er það ekki? Og já, eru miklar líkur á að þetta fari úrskeiðis?

Og síðan eitt í viðbót, eru einhverjar svona “reglur” um það hvoru megin ég á að vera með lokkinn? Svona eins og gat í eyrað hjá hommum….

Með fyrirfram þökkum og afsökunum um of margar spurningar,
Guðrún
We all live in the