Nú þegar flúrfiðringurinn er að gera útaf við mig er ég mikið að spá og spekúlera í flúrum.
Mig langaði að spyrja ykkur hve langan meðgöngutíma flúrin ykkar fengu? Það er hve langt leið frá því að þið völduð myndina eða myndefnið handa flúraranum og þangað til byrjað var að flúra?
Og kannski hvað þið hafið eytt löngum tíma í að finna myndefni?

Ég er með eitt á kálfanum og það tók mig c.a 2mánuði að finna réttu myndina og ákveða mig endanlega að þetta væri það sem ég vildi. Svo var um tveggja vikna biðtími á stofuni.

Núna ættla é hinsvear að fá mér stærra flúr frá öxl að olnboga(90%viss) og er búinn að vera í nokkra mánuði að velta myndefninu fyrir mér og skoða flúrara sem eru lílegir í verkið. Ekki veit ég hvenar kemur svo að þessu en mér liggur ekkert á.