Eru margir hérna sem eru með minningartattoo?

Mig langar svo svakalega að fá mér flúr… hvernig segir maður… um afa minn.


Hvernig tekur fólk flúrunum ykkar, þið sem eruð með minningarflúr? Er ætlast til þess að fyrst þið fenguð ykkur flúr til minningar þessarar manneskju að þið flúrið þá alla sem deyja á ykkur, eða virðir fólk það alveg að þetta er náttúrulega alveg svakalega persónulegt hvernig maður upplifir hlutina og vinnur úr þeim?

Æi ég er svo hrædd um að fólk fari eitthvað að nöldra yfir þessu… fólk finnur ALLTAF eitthvað til að nöldra um (stórfjölskyldan mín telur allmörg fífl) og ég er svo hrædd um að þetta endi bara sem vesen… Held að ef ég fái mér svona segi ég bara engum í fjölskyldunni frá því - enda er þetta bara fyrir mig…

Ég var að hugsa um að fá mér akkeri (hann var skipstjóri) og hjarta, með nafninu hans og fæðingar- og dánardegi.

Sorry ef þetta er ruglingslegur texti, ég kann bara ekki alveg að orða þessar pælingar sem ég er í… Væri osom ef einhver vill tjá sig um þetta - án skítkasts =)