þannig er mál með vexti að ein stelpa sem ég þekki er búin að vera gata heilling af fólki sem ég þekki. allir sem hafa fengið gat hjá henni hafa fengið brjálaðar sýkingar og götin eru bara ljót í samanburði við þau göt sem ég og nokkrar vinkonur mínar erum með á sömu stöðum og við fengum okkur okkar göt á stofu! nú ætlar þessi stelpa að fara að gata á vinkonu sinni snýpinn, takk fyrir pent! tilkynnir þetta öllum sem vilja heyra. allir segja henni að þetta sé eitthvað sem hún ætti ekki að vera að gera, því a)hún á ekki neitt af þessum græjum sem þarf til, notar örugglega bara venjulega nál til og b) hún hefur ekki þekkingu, reynslu eða menntun (set þetta með þó að reynsla sé oft betri en menntun)!!! ég veit að ég get ekkert gert en hvað ef allt fer í vaskinn hjá henni? urrrrr ég bara er pirruð sorry! mér finnst bara að svona viðkvæm götun ætti að vera framkvæmd af manneskju sem hefur allt ofangreint! ekki af 16 ára unglingi sem (afsakið orðbragðið) veit ekkert í sinn haus!

takk fyrir að nenna að lesa þetta