Sælt veri fólkið. Ég vil byrja á að taka fram að ég veit að það eru óteljandi þræðir sem fjalla um hversu vont/ ekki vont það sé að fá sér tattú, en málið er bara það að ég er að spurja um tiltekinn stað :)

Ég var að pæla í að fá mér lítið (tæplega 3*3cm) en detailað tattú á svona ökkla/rist samskeytasvæðinu… ef þið skiljið mig. Rétt framan við kúluna á utanverðum fætinum.

Ef einhver hér hefur reynslu af tattúi á þessum stað, þá væri meira en frábært ef þið munduð segja mér ca. hversu vont það var… samanburður við klip og klór ofl. væri snilld… þá á ég auðveldara með að ímynda mér þetta :p

Mig nefnilega langar svo svaðalega í þetta ákveðna tattú en er algjör aumingi…

Öll sensible svör vel þegin ;)
-Kallisto
'The entire Fleet knows that this man tried to stab me through the neck. And you missed! Butterfingers!'