Var núna að sjá skoðunarkönnunina sem er í gangi, og ég verð bara að fá að spyrja afhverju fólki finnst tunnel vera orðið að einhverju trendi?
Er það eitthvað meira trend en bara að fá sér gat í tunguna eða augnabrúnina?
Það eru mjög vinsæl göt og ég þekki miklu meira af fólki sem er með annaðhvort eða bæði, frekar en tunnel.

Svo hef ég líka tekið mjög mikið eftir svona hvað á ég að segja “mainstream gellum” svo ég setji það á penan hátt en vona að allir nái conseptinu á góðan hátt, en já, hef tekið mikið eftir því að þannig stelpur séu mikið með monroe.

Er alls ekki að reyna að vera með nein leiðindi, er bara forvitin um afhverju fólki finnst tunnel vera eitthvað meira trend en annað??