Ég komst að því um daginn að hérna á Ítalíu er það talið valda ógæfu að hafa fjölda húðflúra slétta tölu. Semsagt 2, 4, 6, 8 eru slæm, en 1, 3, 5, 7 o.s.frv er gott.

Vinir mínir héldu að ég væri bara með eitt, svo mætti ég í aðeins flegnari bol en venjulega einn daginn og allir sögðu mér að fara eins fljótt og hægt er á næstu tattoostofu og fá mér annað, það er klárlega ekki sniðugt að vera bara með 2.
Svo tók ég eftir því að allir vinir mínir hérna sem eru með flúr eru með annað hvort 1 eða 3 :P


Hafið þið heyrt eitthvað svona? Mér finnst þetta svoldið áhugavert :P