Fyrir nokkrum mánuðum byrjaði ég að teygja tunnel sjálf, var komin upp í 5mm þegar að ég ríf eyrað og fékk slæma sýkingu og þurfti að taka lokkinn úr.
Það hafði aldrei verið neitt svaka sárt eða neitt að setja lokkana í, þeir runnu alltaf bara í gegn svoleiðis að ég var ekki að setja neitt til að gera gatið sleipt. En þegar að það kemur að 5mm lokknum þá ríf ég gatið.

Núna ætla ég að láta reyna á þetta alltsaman aftur og ætla ekki að láta neitt fara úrskeiðis, svoleiðis að ég er að velta því fyrir mér hverju hugarar mæla með til þess að gera gatið sleipt??