Jæja, segjum sem svo að ég sé 15 ára stúlkukind sem langar alveg óstjórnlega mikið í eitt ákveðið gat :).
Ég er að fara til Glasgow fljótlega og er búin að afla mér alls kyns upplýsingar um stofur þar.
Ég myndi finna góða stofu þar sem væri vel hæfur einstaklingur til að gera þetta ákv. gat sem ég vil. Að sjálfsögðu þarf maður að skrifa niður upplýsingar eins og vanalega og ég skrifa niður kennitölu sem sýnir að ég sé 18 ára. Ég segji gataranum að ég sé frá Íslandi. Hann spyr jafnvel um ID og ég segji honum einfaldlega að ég sé ekki með svoleiðis, sé bara með cash og hafi ekki tekið ökuskirteinið með til útlanda :).

Svona ef við horfum fram hjá því að þetta sé auðvitað rangt og allt þannig…ólöglegt? ekki eins og maður sé mjög löglegur hvort eðer :). Foreldrar mínir gætu aldrei mögulega komist að þessu, ég lofa :). Og ef þeir myndu nú svo ótrúlega gera það, verða brjáluð og vilja kæra (believe me, foreldrar mínir eru ekki þannig) þá myndi ég bara segja þeim að einhver John Smith á the tattoo gallery of scotland hafi gert það :)…+ þau fara nú varla að kæra e-ð sem var gert í Skotlandi.
Já, en eins og ég sagði ætlum við að horfa fram hjá því :). Haldiði að það sé líklegt gatarinn sé til í að gata mig? Ég meina, hvað veit hann nema ég sé 18 ára og svo er ég líka frá Íslandi svo það er ekki eins og það sé neitt að fara að gerast ;). Einhver kannski reynt þetta?

Einnig, ef svo skemmtilega og virkilega ólíklega vildi til að þið þekktuð til vel hæfra gatara í Glasgow, nálægt einhverju G2 region x), þá endilega komið með það ;).
=)