Annað lobe-ið mitt er frekar illa gert :S. Það er vitlaust staðsett, of neðarlega o.fl. og svo er það líka skakkt, þegar ég set lokk í þá verð ég að setja hann á ská svo ég finni útgönguleiðina.
Allavega er þetta að pirra mig dálítið mikið og mig langar að fara og fá annað í staðinn.
Ég var með göt í eyrunum en það greri fyrir, fór svo og fékk ný einhverjum mánuðum seinna. Stelpan sagðist ætla að skjóta í “gömlu götin” en gerði það eiginlega ekki, gamla gatið var allavega ekki svona skakkt.

En þarf ég ekki að láta gatið gróa áður en ég fæ nýtt? Fékk þetta gat þann 23. ágúst (nenni ekki að reikna hvað er langt síðan :P).
Hvað þarf ég þá að bíða lengi áður en ég get fengið nýtt gat?
=)