Þeir hérna sem nota BPA, hafiði einhvern tímann lesið innihaldið?

Búin að nota þetta síðan ég byrjaði að láta gata mig og var bara fyrst að pæla í þessu um daginn. Það stendur á flöskunni að í þessu sé allt náttúrulegt. Innihaldslistinn er allur í fræðimálsheitum og ég leitaði aðeins að þessum nöfnum á netinu og þetta er niðurstaðan:

Helianthus annuus, [Sólblómaolía]
Lavandula Angustifolia Tocopheryl Acetate, [Lavender e-vítamín olía, man ekki hvað lavender heitir á íslensku]
Melaleuca Alternifolia, [Tetrésolía eða eitthvað álíka]
Melaleuca Viridiflora, [Fann ekki útskýringu eða þýðingu, en þegar ég leitaði að "viridiflora" einu og sér kom að það væri kínversk rós]