Hefur mig lengi langað í tattoo og veit nánast alveg hvernig ég vil hafa það en er þó ekki nógu góður til að geta hannað það sjálfur..

Það sem ég er að velta fyrir mér er… ef ég fæ húðflúrara til að sérhanna fyrir mig.

-Hverjir rukka fyrir sérhönnun og hvað mikið?
-Hvað ef maður er svo engan veginn að fíla hönnunina frá gaurnum???

Ég spyr því ég er rosalega picky og þetta er mjög spes stíll .. ( gamall persneskur listaverka stíll) og hef ekki efni á að borga fleiri fleiri manns að reyna að hanna þetta.. og svo á eftir að flúra.

Getur einhver aðstoðað mig með þetta? Hvern teljiði vera bestan að tileinka sér nýjan stíl.

Öll hjálpleg svör vel þegin!