Hæ, mér langaði að forvitnast aðeins hjá þeim sem eru með Tragus eða bara vita meira um þetta en ég:)
Ég er með Tragus og fékk mér það fyrir 1 ári plús, en hef eiginlega alltaf bara verið með sama lokk í mér, ég reyndar keypti styttri lokk, fannst hinn allt of langur einhvernveginn og nýjar kúlur.
En já það sem ég ætlaði að spyrja um, hvernig lokk hafiði notað? Ég hef heyrt um að sumir nota neflokka í þetta gat en ekki hvernig þeim finnst það, veit að gatið hlýtur að minnka og svona.
En langa svolitið til að breyta til, orðin svolitið þreytt á að vera bara alltaf með þetta eins.

Hehe, endilega bara kommenta ;)
kv. Lola