Já, þá er komið að því loksins að ég ætla að fá mér mitt fyrsta húðflúr og verður það gert hjá Trym Torson sem verður gestaflúrari á Tattoo 69 2 til 8 nóvember minnir mig.
Ætla samt ekki að fara útí eitthvað stórt að þessu sinni, er að geyma stóru framkvændirnar í nokkur ár meðan maður er að vaxa(:
En allavega þá ætla ég að fá mér meyjuna, stjörnumerkið mitt.. líklega á innanverðan kálfann, eða þarna á vöðvanum?
Kannski ekki það frumlegtasta í heimi, en hvað um það.

Veit einhver hvernig stíllinn hans Trym er? ég fann ekkert á google.. kemur samt örugglega allt í ljós þar sem þeir hringja í mig þegar nær dregur og vita meira.
Svo langar mig líka að fá hugmyndir að meyju útsetningu, ég er meira að pæla í semsagt mynd af gellu og eitthvað.. veit ekki alveg en allavega eitthvað líkt þessu: http://ll.tattoojohnny.com/images/designs/JPF-00487/JPF-00487_thumb.jpg

Eða svona útfærsla sirka en er þá að vona að hann myndi spinna eitthvað í kringum þetta og ráða þessu svoldið sjálfur.

Endilega postið einhverjum flottum virgo myndum og ef einhver þekkir til verka kauða.
Born to Raise Hell