Ég var að spyrja fyrir vin minn frá útlöndum sem langar að læra húðflúrun og var að velta fyrir sér hvort að það sé hægt að læra það hérna á Íslandi.
Vitiði hvort að það sé hægt, og ef svo er, hvar og hvernig?
Er hægt að læra það á Akureyri?
Haldiði að einhver taki við honum sem lærlingi ef hann kann bara ensku, þýsku, frönsku og takmarkaða íslensku sem hann er að læra?
Og er þetta kennt í einhverjum iðnskóla eða verkmenntaskóla, eða hvað? Og hve langan tíma tekur það?

Takk!