Jæja þá er þetta afstaðið! Fór í dag klukkan 12 á Ízlensku húðflúrastofuna og Fjölnir húðflúraði á mig:P.
Sendi inn mynd fljótlega en þetta er sirka 5cm tattoo á herðablaðið-fljúgandi hjarta með pentagrami.

Ég er mjög ánægð með útkomuna og þetta var ekki eins vont og ég bjóst við^^

Bætt við 4. september 2007 - 20:15
Heyrðu úr því ég er með kork, tekur tattoo langann tíma að gróa? Ég er alveg á nálunum að láta það ekki rekast í neitt, er svo hrædd um að skemma það.
www.myspace.com/amandarinan