Þannig er mál með vexti að ég keypti mér 14mm taper og tvö 14mm plug með. Og þar sem plug eru alltaf breiðari á endunum þá held ég að endarnir á þessu séu 15-16mm og það er HELL að reyna að koma þessu í eyrun á mér. Ég er búin að reyna vaselín, gera þetta í sturtu, reyna að stækka sneplagatið meira með því að setja vísifingur í það og ekkert virkar. Eru einhverjir snillingar hér sem gætu sagt mér hvað ég gæti mögulega gert?