Jæja, nú er ég að fara á eftir að fara fá vængina mína. Ég er að kafna úr spennu og farast úr kvíða. Ég er bara með eitt lítið tattoo sem tók heilar 15-20 mín að gera á mig og verður þetta því talsvert meira verk.

Þetta eru vængir sem sitja efst á herðarblöðunum og teygja sig örlítið niður á upphandleggina. Mér finnst það vera mjög fallegt þar sem þá virðast vængirnir hreyfast með hverri handahreyfingu hjá mér. Mér finnst líka persónuleg fallegra að hafa svona útbreidda vængi.

Það er langt síðan ég sá akkurat þetta design af vængjum og ég er búin að vera stillt og þæg stelpa og gera einsog mamma mín og pabbi sögðu. Ég er búin að bíða í meira en ár og ennþá langar mig svo í þetta tattoo. Það getur ekki verið vit í öðru en að ég fái mér það.

En vonandi næ ég ág að senda inn mynd í dag, jafnvel þó verkið verði óklárað.

XxX
Sleepless