Ég pantaði tíma í vikunni í tattoo. Fjölnir svaraði þegar ég hringdi upp á Íslenzku Húðflúrastofuna[líklega sem gestaflúrari giska ég?]svo ég ákvað að skella mér í tíma hjá honum og mæti kl.12 þann 4 september að láta húðflúra á mig sirka 5cm tattoo á herðablaðið með fljúgandi hjarta með pentagrami inní.

Ég er afskaplega spennt, þarf bara að laga skissuna mína aðeins til svo það verði sem minnsta vesen=].
Ég var í skólanum þegar ég hringdi og ég varð svo spennt að restina af deginum gat ég varla setið kyrr.

Annars er þessi þráður til lítils annars en að deila gleðifréttunum og athugasemdir og ráð eru annars vel þegin.

En bara smá forvitni, hafiði heyrt gott af kallinum? Annars hefur mútta farið í flúr hjá honum líka, komst af því seinna:P
www.myspace.com/amandarinan