Ok ég sendi mynd af tattooinu mínu hérna inn þannig að þið vitið hvað það er stórt og allt það. Hvað tekur langan tíma fyrir það að gróa. Fékk það á þriðjudaginn og mig langar helst að taka hníf og klóra mér!

Ég þoli ekki að klæja. Eitthvað sem ég get gert til þess að minnka kláðann og eitthvað sem ég má ekki gera svo það eyðileggist ekki:)

Öll ráð vel þegin takk. Mér líður eins og nýbakaðri móður og ég veit ekkert hvað ég á að gera:)