Já ég setti fyrir 2 vikum í mig 3mm tapers og lét eyrun jafna sig duglega og svona, og keypti svo hjá Sessu tapers 3-6mm og setti þá í mig, ekki alla leið , bara upp í svona 4mm.

En eyrun á mér fóru svo helvíti illa út úr því, fór að blæða mikið og svona svo ég ákvað að taka þá úr mér og setja 3mm taperana aftur í mig og ætla nú að láta þetta jafna sig og láta Sessu bara stækka þetta fyrir mig sjálf.

Getur einhver sem hefur reynslu af því að láta Sessu gera þetta, sagt mér hvernig þetta gengur fyrir sig og hvað þetta kostar og svona, hvað hún teygir mikið í einu og svo framvegis.