ég fékk fyrsta flúrið mitt fyrir tveimur vikum, allt hefur gengið alveg frábærlega með það og ég er ekkert smá sátt :P
Ætla bráðum að taka mynd af því til að monta mig :P

En mér fannst svolítið fyndið, þegar ég sat í stólnum og mér leið eins og einhver væri að rífa af mér húðina hugsaði ég aftur og aftur eitthvað í þessa áttina “Jesús, þetta geri ég sko aldrei aftur”
Ég var sko ekki á því að fara í gegnum þennan sársauka fyrir einhverja mynd á húðina á mér :O

En heyrðu, þegar ég labbaði útaf stofuni var ég farin að hugsa, hvar ætti ég að fá mér næsta flúr.

Eruð þið “tattoo-fíklar” líka svona…langar bara að gera þetta aldrei aftur á meðan flúrið er sett á og svo er bara allt gleymt um leið og nálin er tekin í burtu.

Svo vildi ég bara monta mig smá, ég er svo ótrúlega stolt af því að hafa fengið mér tattoo því ég er með ofsahræðslu á nálum :P
Voulez-vous coucher avec moi, ce soir?