Hefur einhver fengið sér húðflúr yfir ör?
Ég er með stórt ljótt ör á bakinu, sirka 2 fersentímetrar, en það er bleikt og mjög upphleypt. Svona ör sem lætur fólk segja “oj” upphátt þegar það sér örið.
Ég hef svoldið verið að pæla í að fá mér annað hvort húðflúr yfir, eða fara í aðgerð til þess að minnka það. Ef ég á að vera alveg hreinskilin er húðflúr skemmtilegri tilhugsun :P

Hefur einhver af ykkur gert það? Hvernig kom það út, sést að það er eitthvað skrýtið undir því?