víí :) er eiginlega 100% búin að ákveða hvernig mitt fyrsta tattú verður, mamma er að spá í að gefa mér það í 16 ára afmælisgjöf :D
ég hef einhvernvegin alltaf elskað Tinkerbell, og ég er með hálfgert viðurnefni tengt henni, Gling gló, en vinnufélagi minn fann uppá því því henni fannst ég vera svo lík Tinkerbell, þannig að það hefur svona fests dálítið við mig ;) Svo erum við á skringilegann hátt með soldið svipaðann persónuleika.
þannig að mig langar rosalega að fá mér tattú af tinkerbell við hægri ökklann og býst við að nota þessa uppstillingu og þessa “facial expression” (man ekki íslenska orðið) svo er spurning hvort maður láti fylgja með “spoiled brat” haha þar sem mörgum finnst ég vera dálítið dekruð ^^

en jáá.. hvernig finnst ykkur? og hvað gæti verðið verið, meira en 10 þús?

Bætt við 13. júlí 2007 - 01:30
hún mun þá koma nokkurnvegin svona út..
serius paint skills ;)