Halló… mér datt í hug að segja frá götum mínum og tattooum!

Ég byrjaði eins og svo margir aðrir á því að fá mér venjulegu götin í eyrnasneplana sem voru skotin með byssu í Kiss…. já ég veit Kiss….
Svo nokkrum árum seinna; um 15 ára byrjaði mig að langa í tattoo fyrir alvöru. Ég hafði ákveðið að fá mér eðlu á bakið en mátti ekki fá fyrr en ég yrði 18. (auðvitað) Svo strax og ég varð 18 fékk ég mér jurtatattoo (big mistake). Það er orðið einhvernveginn sægrænt og ljótt. Svo ákvað ég einn daginn að fá mér gat í naflann og fór til Sessu á tattoo og skart. Hún gerði það frábærlega en svo fékk ég sýkingu. Hálfu ári seinna rifnaði það svo úr!Þá fékk ég mér tattoo á mjöðmina hjá Búra. Stuttu eftir það ákvað ég að fá mér helix gat og skellti mér í Mebu í kaffitímanum mínum og fékk mér gat. Eftir margar ansi fáránlegar uppákomur tók ég það úr. Mér fannst hundleiðinlegt að það hafi ekki virkað þannig að ég fór og lét gera annað gat í hitt eyrað,again í einhverri búðarholu í San Francisco. Gellan hafði ekki hugmynd um hvað hún var að gera og gatið varð aldrei flott, þannig að ég tók það úr. Aftur! Þarna fannst mér kominn tími á 3ja tattooið sem ég fékk mér á bak við eyrað. Eftir það ákvað ég bara að skella mér á tungulokk. Fór til Sessu og gekk frábærlega miðað við hvað ég var ógeðslega viðbjóðslega stressuð. Eins og flest hin götin mín fór það til fjandans á stuttum tíma því ég gleypti kúluna og þegar ég loksins gat farið að kaupa mér nýja var gatið gróið! Can't belive my luck!
Þá var ákvörðun tekin á enn annað tattoo og skellti ég mér því til Sverris á House Of Pain og fékk mér bara reverse naflagat í leiðinni! ótrúlegt en satt, þá stendur það ennþá eftir 5mánuði, heheheh. Svona núna í júní og júlí er ég búin að fá mér tvö tattoo, bæði gerð á House of Pain, annað af einhverjum gaur sem heitir Robert og hitt af snillingnum Jason Thompson.

Áðan rölti ég svo á tattoo og Skart til hennar Sessu og hún skaut svona mitt á milli helix og lobe. Ég ætla að fá mér annað gat þar og tengja þessi tvö saman (orbital)
EEEn, ég er með eina spurningu….. get ég komið svona barbell í þetta gat? sem var gert með byssu…? á þessum stað??
Do the smurf, Do the wop, Baseball bat