Já ég fór til Búlgaríu fyrir ekki svo stuttu og þar var alls staðar morandi í “tattoo básum” (wtf?). Svo voru gaurarnir að reyna að fá fólk til að fá sér tattoo því þeir voru greinilega að fara á hausinn því það er allt of mikið af svona stöðum :P

Mig langaði rosalega í tattoo en var að deyja úr hræðslu vegna sýkingarhættu þannig ég sleppti því bara að fá mér.
Svo voru líka básar með henna tattoo-um og ég ákvað að slá til og prófa, sjá hvernig tattoo myndi fara mér og svona.

Ég fékk mér kínverskt tákn sem þýðir “lazy” haha.. Og fór mér býsna vel að mér finnst, en ég er samt ekki viss með að fá mér alvöru.
Svona henna tattoo haldast á kannski í viku og byrja að dofna.

Gaman að prófa svona :)