Mér tókst loksins að fá mömmu til að leyfa mér að fá tattoo:D Ég er búin að vera að “væla” yfir því seinasta hálfa árið og ég er ekkert smá spennt=)

En svo kemur málið, ég er ekki orðin 18. Það er ennþá 1 ár í það:/ og ég hef heyrt að sumar stofur taki ekki yngri en 18 þó að þau séu með leyfi foreldra. Ég veit að Tattoo&Skart er þannig en vitiði hvaða fleiri stofur taka ekki yngri en 18?

Ég er alveg búin að ákveða og ég er viss um að ég muni alltaf vera ánægð með þetta tattoo, enda með tilfinningalegt gildi.

Ég get ekki beðið eftir þessu þó að ég muni örugglega ganga inn á tattoo stofuna skjálfandi á hnjánum :')
www.myspace.com/amandarinan