Mig vantar eitthvað flott par úr læknastáli eða einhverju góðu meðan götin mín eru að gróa (ég á bara einn skotlokk því ég týndi hinum og það er alveg pínlega ljótt að vera með sitthvoran lokkinn) og ég var að pæla hvaða búðir selja svoleiðis.
Ég er mest að pæla í einhverjum litlum og nettum bling lokkum. Ég hef heyrt að tatto & skart séu með eitthvað gott en eru þau með svona bling lokka?

Guðjón