Ég á litla systur sem er 11 ára. Greyið hefur nokkrum sinnum reynt að vera með göt í eyrnasneplunum, en ekkert gengur.
Síðast þegar hún var götuð festist skotlokkurinn við eyrnasnepilinn, og ég þurfti að skjótast með hana til læknis þegar hún reif hann úr og húðina með. Takk fyrir. Ákveðið var að láta þetta gróa og sjá svo til.

Núna fyrir nokkru vildi hún láta prófa aftur. Ég ræddi við múttu mína, og sagði að það væri örugglega betra að láta stinga með nál í þetta skiptið, og nota þægilegri lokk sem er ekki svona þröngur eins og skotlokkar eru oft. Ég persónulega hata skotlokka útaf lífinu.
Mamma: “Hvar getur maður látið gera þannig? Gera þær í Mebu þannig?”
Ég: “Mér er drullusama hvort að gellurnar í Mebu geri það eða ekki, ef þær gera það þá kunna þær það samt sem áður ekki. Þú ferð með hana til alvöru gatara!”
Mamma: “En eru þeir ekki allir með svo mörg göt og tattoo og svoleiðis?” *hræddur svipur*
Ég: “Það er bara misjafnt sko. Skiptir það máli?”
Mamma: “Æi svona fólk er bara svo sóðalegt eitthvað… ég vil frekar að þær í Mebu geri þetta”

:|

Það er einfaldlega ekki í lagi með konuna.

Loksins náði ég (að ég hélt) að sannfæra hana um að það væri samt sem áður betra að nota nál, fyrst að skot voru augljóslega ekki að gera sig fyrir greyið systur mína, en mamma vildi að hjúkrunarfræðingur gerði það. Eins og var gert við mömmu fyrir 1648 árum síðan.
Flott er, hún talaði við frænku mína sem er hjúkka, hún var til í að gera þetta.

Kem ég síðan ekki í heimsókn til mömmu í dag, og sé systur mína með göt í eyrunum. Skotlokka meiraðsegja. Ég sem var búin að taka til þægilega lokka sem ég ætlaði að lána henni sem byrjendalokka.
HELVÍTIS MAMMA FÓR MEÐ HANA Í MEBU.
Ekki hlusta á mig, mamma. Ekki hlusta á dóttur þína sem hefur prófað bæði mebu OG tattoostofur og hefur actually eitthvað að bera saman. Ekki ætla ég með barnið til læknis næst þegar hún rífur skinnið af hálfu eyranu. Ónei.

Smá nöldur bara…..