Jæja, ég veit að það er korkur um Tragus þarna einhverstaðar en hann virðist bara alveg fara fram hjá mér:/.
Ég er líklegast að fara niður á Tattoo og Skart á eftir að fá mér Tragus og mig langar bara að vita hvort það kosti jafn mikið og venjulegt gat eða er það annað verð?
Er það mikið verra fyrir gatið að gera með byssu?

Bætt við 10. apríl 2007 - 18:47
Jæja ég fór til Sessu að fá mér gatið. Þetta var gert með nál en samt sem áður var þetta ekkert slæmt. Sveið smá en voða auðvelt eitthvað.
Kannski er ég bara svona auðveld, er með 5göt[eyru,nef og nafli] og engin þeirra meitt neitt mikið.
Þetta átti að kosta5000 kall, en ég fékk reyndar á 4000^-^ Þetta er kannski frekar dýrt en ég hef nú ekki reynslu af öðrum gatara en henni og það er mjööög mikilvægt að gat í eyra er gert vel hjá mér vegna viðkvæmnis. Hún notar Titanium lokka sem er líka kostur afþví ég get sagt án gríns, ég er með ofnæmi fyrir 15 málmum, svo það verður að velja vel.
Ég er bara stórsátt með gatið og get ekki beðið eftir að fá mér næsta..hehe.
www.myspace.com/amandarinan