Kannast fólk við það að fá skemmtileg viðbrögð og spurningar þegar þið eruð með tapers? Ég er með 5mm tapers í eyranu og gatið er tilbúið. En já, ég er búinn að fara í nokkrar fermingarveislur undanfarið og hef fengið mjög sérstök viðbrögð við tapers-inu. Oftast eru viðbrögðin: Hvað í fjandanum ertu með í eyranu drengur!!! eða eitthvað álíka. Það leið líka ekki ein fermingarveisla án þess að a.m.k. 5 manns spurðu mig til hvers eða af hverju ég væri með þetta í eyranu. Fólk út á götu hefur líka jafnvel stoppað mig og spurt hvað þetta sé og t.d. þegar ég fór á snjóbretti í gær :)

Hefur einhver sömu sögu að segja? :)