Hverjar eru uppáhalds vefverslanirnar ykkar sem selja lokka?

Ég mæli feitast með Bodyartforms. Tekur þá enga stund að senda til íslands! Þegar ég pantaði þá var ísland ekki á listanum, svo ég sendi email og spurði hvort það væri hægt að redda því einhvernveginn. Fékk email klukkustund seinna á gamlársdag, og ísland var komið á listann :)
Frábær og hröð þjónusta, og ég mæli með að kaupa svona pakka með mörgum lokkum :) það er æði!