Jæja ég lennti í þeirri reynslu að ég fékk eitthvert mein í brjóstið á mér og þurfti að fara í smá aðgerð. Fleiri upplýsingar um það er að finna á /kynlíf og er það ekki það sem ég ætla að væla um…

En málið er að þettað kom í sama brjóst og ég var með gat í geirvörtunni og mér var skipað að taka lokkin úr…. *grenj*
Læknirinn reyndi að segja mér að þettað mein hefði hugsanlega komið útaf lokknum en þegar ég spurði hvernig það gæti staðist þar sem það voru 2-3 mánuðir á milli þess að ég fékk mér þettað gat og þettað mein kom upp þá sagði hann að það gæti líka vel verið að þettað tengdist ekki, en að honum findist bara að ég ætti ekki að fá mér aftur…

En ég verð bara líka að segja að mér fannst það afskaplega fyndið að þegar ég fór í skoðun til þessa læknis talaði hann alltaf um lokkinn minn sem “framandi hlut”.

En ég er staðráðin í að fá mér aftur þegar allt er gróið og orðið gott. Meira að segja kærastinn minn, sem var aldrei sérstaklega hrifinn af þessum lokk, er búinn að segja að ég hafi fullt samþyki frá honum til að fá mér aftur….