Sælt veri fólkið,

mig langar dálítið að vita eitt í sambandi við tattoo. Ég veit að það er ekki sniðugt að djamma áður en maður fær sér tattoo en hvernig er það með djamm eftir tattoo?

Það sem ég á við er hvort það taki það mikið á að fá sér tattoo að maður sé ekki í stuði fyrir djamm um kvöldið. Líka hvort það sé hreinlega slæmt fyrir tattooið.

Ástæðan fyrir því að ég er að velta þessu fyrir mér er sú að ég og kærastan mín ætlum að fá okkur tattoo í London í vor og við ætlum líka að djamma þar. Þess vegna erum við að velta fyrir okkur hvernig við eigum að skipuleggja þetta og þar sem við höfum hvorug fengið okkur tattoo ákvað ég að athuga málið hérna.