ég er nú ekki komin langt enn sem komið er en það er ýmislegt sem á eftir að bætast við.
fyrstu götin sem ég fékk voru í sitthvoran eyrnasnepilinn þegar ég var mánaðargömul(ekki fríka út!).

svo kom að því að ég fékk mér gat í naflann í 8.bekk. það entist í um 3mánuði en þá fékk ég sýkingu og tók það úr, notaði aloe vera plöntu til að losna við sýkinguna.

í 9.bekk nánar tiltekið í mars, fékk ég mér gat í nefið. það var með byssu eins og margir hafa mælt á móti, en ég vissi nú ekki að það væri verra og ég hef ekki lent í neinu veseni með þetta gat.

sumarið í 9.bekk fékk ég svo aftur gat í naflann og ekkert vandamál þar:P.

þarmeð er það upptalið en í sumar fæ ég mér gat í tunguna, er að spá í tragus..og fæ mér svo tattoo líka í sumar á hægri öxlina en ég er á 17 ári núna.

ja..þetta er ofsalega stuttur listi miðað við suma en það er bara að bæta við sig;)
www.myspace.com/amandarinan