Sælt veri fólkið!

Fyrst vil ég byrja á að lýsa ánægju minni með þetta frábærlega skemmtilega svæði á huga. Ég hef fylgst með alveg frá byrjun og byrjaði í raun að fylgjast með umræðunni þegar hún var bara korkur á Tíska & útlit.

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á húðflúrum og stefnt að því að fá mér sjálfur. Það strandaði þó á því að ég var aldrei viss um hvað mig langaði að fá mér. Nú er ég þó kominn með 3 solid hugmyndir sem ég ætla að fá mér og svo er ég alveg orðinn óður í að fá mér töff half-sleeve, á bara eftir að finna gott þema fyrir það og útfæra það. Mér finnst mjög gaman að fá að fylgjast með þeim sem eru í slíkum framkvæmdum hérna og sérstaklega finnst mér verkið sem praisetheleaf er að fá sér algjör snilld. Það má eiginlega segja að ég sé orðinn algjörlega hooked áður en ég er kominn með svo mikið sem einn húðflúraðan punkt. Frekar magnað.

Allavegana, nóg af þvaðri. Ég og kærastan mín ætlum að skella okkur til London í lok maí í rómantíska tónleikaferð. Þá datt mér í hug hvort ekki væri sniðugt að koma heim með eitt stykki flott tattoo. Þess vegna langar mig að vita hvort einhver af snillingunum hérna inni þekki til húðflúrmenningarinnar í London eða geti bent mér á hvar ég geti fundið upplýsingar um það á netinu.

Svo vona ég bara að krafturinn sem einkennt hefur byrjun þessa svæðis haldi áfram, ég kem hingað á hverjum degi og mun að sjálfsögðu setja inn myndir um leið og ég fæ mér tattoo sjálfur.

Kveðja,
eldoro